Mannverk auglýsir eftir rafmagns- eða tækniverkfræðing

Mannverk óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í verkefna- og framkvæmdastjórnun sem tilbúinn er að takast á við krefjandi verkefni á raforkusviði og skemmtilegar áskoranir með góðri liðsheild.
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði rafmagnstækni eða -verkfræði
  • Farsæl starfsreynsla
  • Menntun í rafiðn er kostur
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Metnað til að ná árangri í starfi
  • Góð kunnátta í ensku

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas Már Gunnarsson í síma 771 1101. Umsóknarfrestur er til og með 15. desember n.k. Umsókn óskast send á jmg@mannverk.is. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.